Um mig
Vegna menntunar minnar og starfa tel ég að ég hafi ýmislegt fram að færa á vettvangi stjórnmálanna. Ég er menntaður þjóðhagfræðingur með doktorsgráðu frá háskólanum í Árósum auk þess að vera iðnrekstrarfræðingur frá Tækniháskóla Íslands. Ég var forstöðumaður Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands í ellefu ár, var lektor, dósent og síðast prófessor við sama skóla tímabilið 1996 til 2006. Var forstjóri fjárfestingarbankans Askar Capital frá stofnun til júlí 2008 þegar ég tók við stöðu sérstaks efnahagsráðgjafa Geirs Haarde forsætisráðherra. Ég gegndi því starfi allt þar til ég sagði af mér seinnipart október 2008. Frá síðustu áramótum hef ég verið prófessor í hagfræði við Háskólann í Reykjavík. Ég hef verið ráðgjafi fyrirtækja, stofnana alþjóðastofnana og stjórnvalda í ýmsum löndum allt frá 1992.
Ég á á fjögur börn: Mist, Halldór Reyni, Veigar og Önnu Ragnheiði. Ég er fæddur og uppalinn á Neskaupstað og er giftur Sigurveigu Ingvadóttir sem er fædd og uppalin á Eskifirði.




