Kæru félagar og vinir

Skráð 26.febrúar 2009

Eftir nokkra umhugsun og yfirlegu hef ég ákveðið að gefa kost á mér í 2. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í NA-kjördæmi 14. mars næstkomandi. Með þessari ákvörðun er ég að svara því kalli að á Alþingi setjist fólk sem hefur fagþekkingu og reynslu úr atvinnulífinu - fólk sem ekki hefur hlotið frama í pólitík vegna starfs innan flokkanna.

Ég hef ekki áður verið virkur í pólitísku starfi ef frá er talinn einn vetur þegar ég sat í einu hverfaráðanna í Reykjavík snemma á tíunda áratugnum.

Vegna menntunar minnar og starfa tel ég að ég hafi ýmislegt fram að færa á vettvangi stjórnmálanna. Ég er menntaður þjóðhagfræðingur með doktorsgráðu frá háskólanum í Árósum auk þess að vera iðnrekstrarfræðingur frá Tækniháskóla Íslands. Ég var forstöðumaður Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands í ellefu ár, var lektor, dósent og síðast prófessor við sama skóla tímabilið 1996 til 2006. Var forstjóri fjárfestingarbankans Askar Capital frá stofnun til júlí 2008 þegar ég tók við stöðu sérstaks efnahagsráðgjafa Geirs Haarde forsætisráðherra. Ég gegndi því starfi allt þar til ég sagði af mér seinnipart október 2008. Frá síðustu áramótum hef ég verið prófessor í hagfræði við Háskólann í Reykjavík. Ég hef verið ráðgjafi fyrirtækja, stofnana alþjóðastofnana og stjórnvalda í ýmsum löndum allt frá 1992.

Ég á fjögur börn: Mist, Halldór Reyni, Veigar og Önnu Ragnheiði. Ég er fæddur og uppalinn á Neskaupstað og er giftur Sigurveigu Ingvadóttir sem er fædd og uppalin á Eskifirði.

Ef ég fæ brautargengi í kosningunum þann 25. apríl næstkomandi mun ég auk þess að starfa að framfaramálum í kjördæminu leggja áherslu á efnahagsmál, atvinnumál og fjármál hins opinbera.

Þið getið lagt mér lið með því að velja mig í 2. sæti í prófkjörinu 14. mars og með því að kjósa Sjálfstæðisflokkinn í kosningunum 25. apríl. Ef þið eruð ekki flokksbundin þá hvet ég ykkur til að ganga í Sjálfstæðisflokkinn til að geta kosið mig í prófkjörinu 14. mars.

Kær kveðja,
Tryggvi Þór Herbertsson